- apríl 2026
Sala miða í sumarferðir Lífeyrisdeildar Sameykis hefjast í dag, 13. apríl kl. 10. Um er að ræða ferðir á Snæfellsnes undir leiðsögn Harðar Gíslasonar. Hægter að velja á milli 3ja dagsetninga, þriðjudaginn 23. júní, fimmtudaginn 25. júní og þriðjudaginn 30. júní. Keyrt verður í Borgarnes og út á Snæfellsnes þar sem áhugaverðir staðir verða skoðaðir. Á Narfeyrarstofu í Stykkishólmi verður boðið upp á rjómalagaða sveppasúpu og brauð í hádeginu. Við munum dvelja í Stykkishólmi og skoða fallegt umhverfi þar. Í lok dags verður boðið upp á kvöldverð á Hótel Hamri í Borgarfirði. Nánari lýsing á ferð verður komin á vefinn fyrir 13. apríl þegar skráning hefst. Félagsfólk má bjóða með sér einum gesti. Verð er 9.000 kr. á mann með öllu