Image for Article

  1. október 2025

BSRB gagnrýnir harðlega niðurskurðarstefnu ríkisstjórnarinnar

BSRB hefur skilað umsögn um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2026 og lýsir þar miklum vonbrigðum með að frumvarpið boði áframhaldandi niðurskurð í opinberri þjónustu í stað þess að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs.

Bandalagið fagnar áherslum um fjölgun hjúkrunarrýma, aukna geðheilbrigðisþjónustu, stuðning við börn og ungmenni í vanda, aukin framlög til löggæslu og öryggismála auk vegabóta en bendir hinsvegar á að undirliggjandi stefna fjárlagafrumvarpsins sé aðhald og sparnaður á kostnað almannaþjónustunnar. Í umsögninni segir enn fremur að efnahagsstefna undanfarinna ríkisstjórna hafi einkennst af veikingu tekjustofna þegar verulegar lækkanir voru gerðar á tryggingagjöldum, bankaskatti, fjármagnstekjuskatti, erfðafjárskatti og tekjuskatti einstaklinga. „Áhrif þessara skattalækkana nema tugum milljarða króna árlega.“

„Mikilvægt er að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs, en þess í stað boðar frumvarpið óbreytta efnahagsstjórn með áframhaldandi niðurskurði sem mun gera mönnun þjónustunnar enn erfiðari og grafa undan velferð og öryggi íbúa landsins,“ segir í umsögninni.

BSRB bendir á að rót efnahagsvandans liggi ekki í útgjöldum til opinberrar þjónustu heldur í afleiðingum heimsfaraldurs, náttúruhamfara og bankahruns. Bandalagið hvetur ríkisstjórnina til að velta vaxtakostnaði ríkissjóðs ekki yfir á launafólk og notendur almannaþjónustunnar.

Í umsögninni er harðlega mótmælt boðuðum breytingum á mikilvægum tilfærslukerfum eins og barnabótum, vaxtabótum og atvinnuleysistryggingum, sem BSRB segir veikja stöðu launafólks og bitna mest á tekjulægri hópum.

„Það er ámælisvert að svo veigamiklar breytingar séu gerðar án samráðs við aðila vinnumarkaðarins og án þess að greiningar á áhrifum þeirra liggi fyrir,“ segir enn fremur í umsögninni.

BSRB varar einnig við því að fjárlagafrumvarpið feli í sér raunverulegan niðurskurð á heilbrigðisþjónustu þar sem sjúkrahús og heilsugæsla eigi að spara rúma þrjá milljarða með svokölluðum sértækum aðgerðum.

Hægt er að lesa umsögn BSRB í heild sinni hér.