Image for Article

  1. október 2025

Raddir háskólamenntaðra skipta máli – segðu þitt álit í könnun háskóladeildar Sameykis

Háskóladeild Sameykis óskar eftir að háskólamenntað félagsfólk í Sameyki taki þátt í könnun á vegum háskóladeildarinnar. Stjórn háskóladeildar Sameykis mun nota niðurstöðurnar til að skerpa á starfi deildarinnar við vinnu að hagsmunamálum háskólamenntaðs félagsfólks í Sameyki.

Könnunin er í fimm hlutum og samanstendur af sextán spurningum. Það ætti ekki að taka meira en þrjár til fimm mínútur að ljúka henni. Í fyrsta hluta könnunarinnar langar stjórnina að fræðast um viðhorf félagsfólks, sem háskólamenntaðs starfsfólk, til Sameykis. Könnunin er nafnlaus.

Þátttakendum sem svara fyrir 15. október gefst einnig tækifæri til að skrá sig í happdrætti um helgardvöl í einu af orlofshúsum Sameykis.

 

Svara könnuninni hér