- júní 2024
Kynning á kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis
Kynning á kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis
Þann 13. júní sl. skrifaði skrifaði Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu undir samkomulag við Reykjavíkurborg um framlengingu og breytingar á kjarasamningi milli aðila.
Tveir rafrænir kynningarfundir um kjarasamninginn verða haldnir á Teams:
• Miðvikudaginn 19. júní kl. 14:00 – Smellt er á tengil á fundinn hér.
• Fimmtudaginn 20. júní kl. 11:00 – Smellt er á tengil á fundinn hér.
Atkvæðagreiðsla um samninginn mun standa yfir frá kl. 14:00 miðvikudaginn 19. júní til kl. 14:00 mánudaginn 24. júní inn á Mínum síðum Sameykis.
Við hvetjum félagsfólk til að kynna sér kjarasamninginn inn á Mínum síðum, undir Mín kjör og taka þátt í atkvæðagreiðslunni um hann.