Image for Article

  1. febrúar 2024

Páskabingó Sameykis

Hið árlega páskabingó Sameykis verður haldið í Félagamiðstöðinni á Grettisgötu 89, sunnudaginn 10. mars kl. 13:00. Bingóið er ætlað félagsfólki Sameykis og fjölskyldum þeirra.

Fullt af páskaeggjum bíða þess að gleðja unga fólkið. Bingóstjóri að venju verður Rut Ragnarsdóttir.

Páskaegg, brandarar, gleði og gaman. Hlökkum til að sjá ykkur.

Spjaldið kostar 500 kr.