- október 2023
Mannauðskönnunin Stofnun ársins 2023 að hefjast
Mannauðskönnunin Stofnun ársins 2023 að hefjast
Nú er könnunin Stofnun ársins 2023 að hefjast. Farið verður rólega af stað en félagsfólk má svo flest eiga von á tölvupósti í næstu viku um þátttöku í könnuninni. Félagsfólk getur einnig nálgast tengil á könnunina inn á „Mínum síðum“ Sameykis.
Stofnun ársins er viðamikil mannauðs- og launakönnun. Tilgangur hennar er að styrkja mannauðsmál og starfsumhverfi starfsfólks í opinberri þjónustu. Könnunin veitir ítarlegar upplýsingar um stöðu mála, þ.e. styrkleika og áskoranir í starfsumhverfinu og mannauðsmálum sem nýta má til umbótastarfs á vinnustaðnum. Það er okkar trú að könnunin sé jákvætt innlegg í starfsemi vinnustaða fyrir starfsfólk og þá sem þiggja opinbera þjónustu og samfélaginu öllu til hagsbóta. Félagsfólk Sameykis gefst einnig tækifæri til þess að svara um kjör sín í könnuninni.
Frá Stofnun ársins 2022 sem haldin var á Hótel Hilton Reykjavik Nordica í mars 2023.
Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til tæplega 40.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Almennt er miðað við að þátttakendur séu í a.m.k. 20% starfshlutfalli og hafi starfað á vinnustaðnum í þrjá mánuði eða lengur. Þetta viðmið er notað svo svarendur séu betur í stakk búnir til að meta starfsumhverfi sitt með áreiðanlegum hætti.
Gallup á Íslandi sér alfarið um vinnslu og framkvæmd könnunarinnar, þ.e. gagnaöflun, varðveislu gagna og skýrslugerð.
Dettur þú í lukkupottinn?
Úr hópi svarenda Sameykis félaga verða alls dregnir 12 vinningar úr innsendum svörum:
• Tvö gjafabréf frá Icelandair, að verðmæti 60.000.- kr. hvert
• Fjögur gjafakort í Hörpuna, að verðmæti 30.000.- kr. hvert
• Helgardvöl í orlofshúsum félagsins, samtals fimm vinningar
• Vikudvöl í orlofshúsum félagsins á Spáni, einn vinningur
Mundu að geyma happdrættisnúmerið þitt sem kemur fram í tölvupóstbréfinu sem fylgir könnuninni. Vinningsnúmer verða birt í febrúar á vef Sameykis. Dregið er úr innsendum svörum.
Nánari upplýsingar um könnunina og framkvæmd hennar má sjá hér.