Image for Article

  1. október 2021

Skotheldar aðferðir á námskeiði með Sirrý

Misstu ekki af mjög skemmtilegum fyrirlestri með fjölmiðlakonunni Sirrý Arnardóttur sem ætlar að fjalla um örugga tjáningu og og betri samskipti sem fram fer á miðvikudaginn komandi hjá Framvegis og ber yfirskriftina, Örugg tjáning og framkoma á fundum í rafheimum. Eftir fyrirlesturinn verða umræður um efni hans. Það sem þátttakendur mega vænta er að fá verkfæri með hagnýtum ráðum til að tjá sig af öryggi í rafheimum og raunheimum.

 

Meðal efnis:

• Hvernig er hægt að nýta sér sviðsskrekk

• Skotheld aðferð til að undirbúa ,,óundirbúna” ræðu

• Hagnýtar aðferðir og æfingar til að verða betri ræðumaður/viðmælandi

• Örugg tjáning og framkoma á fundum í rafheimum

 

Dagsetning: Miðvikudagur 27. október, kl. 19:00 - 20:30

Leiðbeinandi: Sirrý Arnardóttir, sem á að baki 30 ára farsælan fjölmiðlaferil en starfar nú sem stjórnendaþjálfari, fyrirlesari, rithöfundur og kennari við Háskólann á Bifröst.

Netviðburður – skráðir þátttakendur fá senda krækju með aðgangi að námskeiðinu.


Skráðu þig hér.