1. apríl 2020

Stofnun ársins - frestað

Nú er söfnun gagna fyrir könnunina um Stofnun ársins lokið og í vanalegu árferði hefðum við birt niðurstöðurnar og veitt viðurkenningarnar um miðjan mai. En í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi í samfélaginu vegna Covid-19 faraldursins hefur stjórn Sameykis ákveðið að fresta birtingu niðurstaðnanna og verðlaunaafhendingunni fram í miðjan október.