Image for Article

  1. október 2019

Vel heppnaður haustfagnaður

Það vantar svo sannarlega ekki stemninguna á skemmtunum lífeyrisdeildar Sameykis. Í dag hittust félagar á haustfagnaði, gæddu sér á sviðum og hangikjöti, hlógu dátt með Ara Eldjárn og sungu með Kristni harmonikkuleikara. Það var stjórn lífeyrisdeildarinnar sem skipulagði viðburðinn en hann var haldinn í sal Garðyrkjufélagsins í Síðumúla og þangað komu yfir 120 manns.