1. desember 2018

Takk sjálfboðaliðar!

Í dag 5. desember er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða. Það er því við hæfi að þakka öllum þeim fjölda sjálfboðaliða sem halda starfi félagsins á lofti. Verkalýðshreyfingin er byggð upp af sjálfboðaliðum og öflugt starf hennar enn þann dag í dag væri ekki mögulegt nema fyrir ótal viljugar hendur og huga fólks með sanna stéttarfélagshugsun.