Image for Article

  1. október 2018

Grjótharðir göngugarpar

Í Líeyrisdeild SFR er afar virkur hópur fólks á besta aldri. Auk þess að skipuleggja ýmsa viðburði eins og Þorrablót og Jónsmessuferðir þá hittast mörg þeirra á hverjum miðvikudagsmorgni og ganga saman. Gönguhópurinn kallar sig Grjótharðir göngugarpar og má finna hann á facebook undir nafninu Gönguhópur LSFR - Grjótharðir göngugarpar. Gönguleiðirnar eru flestar í Reykjavík og nágrenni og gengið er í um eina klukkustund. Næsta ganga er miðvikudaginn 10. október kl. 10:30 og hefst hún við Vesturbæjarlaugina. Nýir göngufélagar eru sérstaklega velkomir. Það er bara nóg að mæta.

Hér má sjá dagskrá gönguklúbbsins