Image for Article

  1. apríl 2018

Trúnaðarmenn á kafi í launaútreikningum

Í dag var að ljúka annarri lotu í trúnaðarmannanámi Félagsmálaskóla alþýðu en í þeirri lotu er námsefnið tileinkað samskiptum á vinnustað, túlkun kjarasamninga, hagfræði, lestri launaseðla og launaútreikningum. Þetta var síðasta námskeiðið á þessum vetri, en fleiri lotur verða í boði næsta haust, nánar kynnt þegar dagsetningar liggja fyrir.