- desember 2016
Stjórn SFR stéttarfélags hefur ákveðið að styrkja Kvennaathvarfið og Hjálparstarf kirkjunnar um samtals 500 þúsund kr. Félagið hefur ekki sent jólakort undanfarin ár en þess í stað var ákveðið að styrkja samtök sem á þurfa að halda í tilefni jólanna. Hjálparstofnun kirkjunnar styður við efnalitlar barnafjölskyldur á Íslandi og Kvennathvarfið vinnur afar mikilvægt og þarft starf eins og landsmenn vita.