- nóvember 2016
SFR og St.Rv. héldu sameiginlegt aðventukvöld fyrir félagsmenn sína þann 24. nóvember síðastliðinn. Kvöldið var afar vel heppnað en yfir 80 manns komu til þess að hlýða á upplestur og tónlist. Rithöfundarnir Guðrún Eva Mínervudóttir og Davíð Logi Sigurðsson lásu upp úr nýjum verkum, Jólatríólurnar sungu jólalög, Þórarinn Eyfjörð las ljóð og síðastur á svið var Bjartmar Guðlaugsson sem bæði las og söng fyrir gesti við mikinn fögnuð viðstaddra.