Image for Article

  1. nóvember 2016

Vinnustofur vegna stofnanasamninga

Í vikunni fóru af stað fyrstu vinnustofur vegna stofnanasamninga. Þar koma saman trúnaðarmenn og fulltrúar SFR á vinnustöðum ásamt stjórnendum sem saman mynda samstarfsnefndir stofnana.Fjallað var m.a. um innleiðingu og ný ákvæði um stofnanasamninga og aðferðafræði við vörpun í nýja launatöflu, en ný launatafla verður tekin upp 1. júní 2017.

Þeir fulltrúar stofnana sem myndað hafa samstarfsnefndir en eiga enn eftir að skrá sig á vinnustofur eru hvattir til þess að gera það sem allra fyrst. Næstu vinnustofur verða í desember og mun verkefnið standa fram á næsta ár. 
SKRÁNING á vinnustofur vegna stofnanasamninga.