- nóvember 2016
Fundir með félagsmönnum víða um land
Fundir með félagsmönnum víða um land
Undanfarnar vikur hafa formaður og framkvæmdastjóri SFR fundað víða um land með félagsmönnum. Fundirnar hafa m.a. verið á Egilsstöðum, Akureyri, Ísafirði, Patreksfirði, Reykjavík, Stykkishólmi, Sauðárkróki og Siglufirði. Góð þátttaka hefur verið á fundunum þar sem rædd hafa verið meðal annars lífeyrissjóðs- og kjaramál auk þjónustu félagsins. Í morgun var síðasti fundurinn í þessari fundaröð á Grettisgötu 89. SFR þakkar félasgmönnum kærlega fyrir þátttökuna og góðar umræður.