1. september 2016

Viltu taka þátt í stofnun háskóladeildar?

Undirbúningsfundur vegna stofnunar háskóladeildar verður haldinn þriðjudaginn 4. október kl. 16:30 að Grettisgötu 89, BSRB húsinu, 1. hæð. 

Á síðasta aðalfundi SFR, sem haldinn var í mars 2016, var samþykkt að stofnuð yrði deild fyrir háskólamenntaða félagsmenn innan SFR. Tilgangur Háskóladeildar SFR er fyrst og fremst að vera hagsmunavettvangur háskólamenntaðra félagsmanna innan SFR.

Á fundinum verður farið yfir hugmyndina að stofnun deilarinnar, tilgang hennar og væntingar til starfa deildarinnar. Unnið verður í hópum og lagðar verða nokkrar spruningar fyrir hópana sem teknar verða til umræðu í lok fundar.

Smelltu og skráðu þig hér.