- ágúst 2016
Verkfall SFR í vetur skilaði árangri að mati félagsmanna
Verkfall SFR í vetur skilaði árangri að mati félagsmanna
Samkvæmt könnun SFR sem birt var í Blaði stéttarfélaganna fyrr í sumar náði verkfall SFR í október síðastliðnum til um 77% félagsmanna. Rétt um 64% tóku þátt í verkfallinu sjálfu með beinum hætti en 13,5% félagsmanna voru í vinnu á meðan á því stóð með sérstökum undanþágum. Fleiri karlar en konur störfuðu á undanþágu og einnig voru þeir yngri líklegri til þess að vinna á undanþágu en þeir sem eldri voru.
Mikill meirihluti félagsmanna eða um 78% var mjög eða frekar sammála því að stjórnendur á vinnustað sýndu verkfalli SFR skilning. Það var þó helst starfsfólk innan heilbrigðisþjónustunnar sem sögðu að vantað hafi upp á skilning stjórnenda á verkfallsaðgerðum.
Þá var meirihluti svarenda (87%) á því að SFR hefði staðið vel við bakið á félagsmönnum í verkfallinu og voru ánægð með að SFR hefði beitt verkfallsvopninu í kjarabaráttunni. Meirihluti svarenda eða 77% voru einnig sammála um að með verkfalinu hefði náðst sá árangur sem stefnt var að.