1. október 2015

Fjölmennur trúnaðarmannaráðsfundur

IMG_0425Afar fjölmennur og kröftugur fundur trúnaðarmannaráðs stendur nú yfir. Á dagskrá fundarins er skipulag verkfallsaðgerðanna framundan, en verkfall ríkisstarfsmanna í SFR skellur á nú 15. október næstkomandi. Mikill hiti er í trúnaðarmönnum og miklar umræður enda kalla verkfallsaðgerðir að þeim mælikvarða sem nú standa fyrir dyrum á afar mikið skipulag og mörgum spurningum þarf að svara. Trúnaðarmenn munu standa verkfallsvörslu á vinnustöðum ásamt fleirum félagsmönnum. Verkfallið mun snerta mörg þúsund starfsmenn og um 170 stofnanir um land allt.

 

IMG_0420

IMG_0427

IMG_0428