1. maí 2015

SFR styrkir verkfallssjóð BHM og lýsir yfir stuðningi við verkfallsaðgerðir

IMG_9915Á fjölmennum fundi félagsmanna BHM nú í hádeginu afhenti Árni Stefán Jónsson formaður SFR bandalaginu 15 milljónir króna úr Vinnudeilusjóði félagsins og sýndi með því samstöðu SFR við félagsmenn BHM sem verið hafa í verkfalli undanfarnar vikur.

Árni Stefán las upp og afhenti síðan Þórunni Sveinbjarnardóttur formanni BHM bréf þar sem SFR lýsir yfir stuðningi við bandalagið í þeirri harkalegu kjarabaráttu sem nú stendur yfir. Nokkur hundruð félagsmenn BHM voru á fundinum og fögnuðu orðum Árna Stefáns ákaft og Þórunn þakkaði fyrir þann kærkomna peningastuðning sem þarna var veittur og þeim mikla samhug sem honum fylgir.

IMG_9909

Hér má sjá innihald bréfsins sem Árni Stefán las og afhenti Þórunni:

Sú alvarlega staða sem komin er upp á vinnumarkaði kallar á ríka samstöðu stéttarfélaga og bandalaga. Ríkisvaldið og Samtök atvinnulífsins hafa sýnt af sér fádæma getuleysi í að koma fram með trúverðugum hætti í yfirstandandi kjaraviðræðum. Í þessari stöðu þarf launafólk að standa saman.

SFR stéttarfélag í almannaþjónustu styður félaga sína innan BHM sem hafa staðið í harkalegri kjarabaráttu undanfarnar vikur.

 Eitt af meginhlutverkum stéttarfélaga er að standa vörð um hagsmuni félagsmanna sinna og nú er staðan sú í kjarasamningsviðræðum að nauðsynlegt hefur verið að grípa til aðgerða. Kjör og réttindi launafólks eru í húfi. Í slíkum aðstæðum er samstaðan mikilvæg, ekki bara samstaða innan félaga og aðildarsamtaka heldur einnig milli stéttarfélaga sem standa í svipuðum sporum. Aðgerðum eins og þeim sem BHM stendur nú í fylgir mikill kostnaður auk álags og óvissu fyrir félagsmenn.

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu og Vinnudeilusjóður félagsins hefur í ljósi þessa ákveðið að færa BHM 15.000.000.- til að styrkja bandalagið í þeim hörðu átökum sem nú standa yfir.

SFR vill með þessu sýna samhug sinn í verki og styðja þannig við félagsmenn BHM og þá kjarabaráttu sem þeir nú standa í.