1. desember 2014

Breytingar á úthlutunarreglum starfsmenntunarsjóðs

Stjórn Starfsmenntunarsjóðs SFR hefur gert breytingar á úthlutunarreglum sjóðsins og taka þær gildi 1. janúar 2015.

Meginbreytingarnar eru að núna þarf 5 ára félagsaðild í stað 8 ára aðildar til að eiga rétt á kr. 140.000 á tveggja ára tímabili.

Einnig er núna hægt að fá 100% kostnaðar greitt í stað 80%, nema þegar um er að ræða lífsleikninámskeið, þá gildir áfram 50% reglan.

Námskeið til starfsréttinda án beinnar tengingar við starf hækkar í kr. 100.000 úr kr. 60.000.

Þá bætist við heimild til að sækja um ferðastyrk að hámarki kr. 30.000 vegna náms sem ekki er hægt að sækja í heimabyggð.

Sjá nýjar úthlutunarreglur hér.