1. nóvember 2014

Trúnaðarmenn á námskeiði

Trmnam-nóv-2014

Núna stendur yfir námskeið trúnaðarmanna þar sem meðal annars er fjallað um hlutverk og verkfæri trúnaðarmanna, kjarasamning, launakjör, launamyndun, starf og stefnu stéttarfélagsins. Einnig er farið í leiðtogaþjálfun, mótun sjálfsmyndar og áhrif hennar á hegðun. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að trúnaðarmenn þjálfist í að vinna með kjarasamninginn og hvar sé hægt að finna svör við hinum fjölbreyttu spurningum sem þeir fá í hlutverki sínu sem trúnaðarmenn.

Um er að ræða þriggja daga námskeið sem er samstarfsverkefni SFR stéttarfélags og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

Trmnam-nóv1-2014

Trmnam-nóv2-2014