1. júní 2014

Kjarasamningur SFV samþykktur

Félagsmenn SFR  og Sjúkraliðafélags Íslands sem starfa hjá fyrirtækum í Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa samþykkt nýjan kjarasamning sem félögin gerðu við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Kjarasamningurinn var samþykktur með rúmlega 92% greiddra atkvæða. Alls voru 576 á kjörskrá en af þeim kusu 356. Kjörsókn var rétt tæplega 62%.