1. maí 2014

Samninganefnd SFR og SLFÍ situr við

IMG_6475 (Copy)Fundur samninganefndar SFR og SLFÍ með SFV hófst hjá sáttasemjara að nýju í morgun, en hlé hafði verið gert á viðræðum klukkan tíu í gærkvöld en þá hafði fundur staðið í níu tíma. Samningamenn segja hægt þokast en þó í rétta átt, en enn eru nokkur stór mál óleyst. Reiknað er með að allsherjar verkfall allra félagsmanna SFR og SLFÍ hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu hefjist klukkan 8 í fyrramálið, fimmtudaginn 22. maí, nema samningar náist.

 

Hægt er að fylgjast nánar með samningaviðræðum og verkfallsaðgerðum á facebooksíðunni:

Verkfall félagamanna SLFÍ og SFR