- janúar 2014
Trúnaðarmannafræðsla á vorönn 2014
Trúnaðarmannafræðsla á vorönn 2014
Trúnaðarmenn geta sótt sér fjölbreytt nám til að styrkja sig í að sinna verkefnum sem falla undir hlutverk trúnaðarmanna.
Fyrst ber að nefna grunnnám trúnaðarmanna sem SFR og St.Rv. halda sameiginlega, en það er 21 klukkustundar námskeið.
Næst ber að nefna trúnaðarmannanám BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu (FA). Námið er byggt á tveimur námsskrám sem viðurkenndar hafa verið af mennta – og menningarmálaráðuneytinu. Námsþættir námsskrár Trúnaðarmannanámskeiðs I eru samtals 81 klst. og skiptast á fjögur þrep. Námsþættir námsskrár Trúnaðarmannanámskeiðs II eru samtals 61 klst. og skiptast á þrjú þrep. Sjá nánar hér í frétt á vef BSRB.
Síðan eru það styttri námskeið og fræðslumorgnar á undan fundum trúnaðarmanna.
Þau námskeið sem er búið að festa niður á vorönn eru:
Öll námskeiðin eru kennd á Grettisgötu 89, 1. hæð.
Þá heldur Félagsmálaskóli alþýðu opin trúnaðarmannanámskeið sem byggja á námsskránum tveimur sem viðurkenndar hafa verið af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Trúnaðarmenn SFR geta skráð sig á þessi opnu námskeið ef að tíma- og staðsetningar henta þeim, sjá framboð opinna námskeiða hér.
-------------------------------------------------------------
Fræðslumorgunn – Starfsmaðurinn og breytingar
Á námskeiðinu er fjallað um dæmigerð einkenni, spurningar og viðbrögð starfsfólks þegar breytingar eru í nánd, eru að ganga í gegn, eða eru nýyfirstaðnar. Markmiðið er að styrkja og auka öryggi trúnaðarmanna og gera þá betur í stakk búna til að sinna hlutverki sínu á breytingatímum.
---------------------------------------------------------------
SFR/St.Rv. – Grunnnám trúnaðarmanna
Farið verður yfir starf og stefnu stéttarfélagsins. Fjallað er um hlutverk trúnaðarmanna og verkfærin hugarkort og lausnarleitarhringinn sem gott er að nota við úrlausnir mála sem koma inn á borð trúnaðarmanna. Einnig þjálfun í að nýta sér verkfærin. Farið verður í megininntak kjarasamninga félaganna og túlkun helstu atriða. Þjálfun í að vinna með kjarasamningana út frá raunverulegum dæmum. Einnig fjallað um vinnustaðamenningu. Farið verður yfir hvar finna má upplýsingar um kjaratengd mál og hvernig vinna má með samninga, kjarakannanir, lög og reglur. Fjallað verður um starfsmat, stofnanasamninga og launamyndandi þætti ásamt fleiru. Einnig er fjallað um tjáskipti, mótun sjálfsmyndar og áhrif hennar á hegðun. Sett eru markmið um eigin þróun í hlutverki trúnaðarmanns.
-------------------------------------------------------------------
BSRB/FA TR. I 1. ÞREP – tvær tímasetningar í boði
|
Dagur |
mánudagur |
þriðjudagur |
miðvikudagur |
|
09:00 - 15:45 |
Þjóðfélagið og vinnumarkaðurinn Leiðbeinandi: Sigurður Magnússon |
Trúnaðarmaðurinn - starf hans og staða Leiðbeinandi: Sigurlaug Gröndal |
09:00-15:30 Samskipti á vinnustað Leiðbeinandi: Sigurlaug Gröndal |
|
15:30 - 15:45 |
|
|
Námsmat og slit |
Skráning: http://www.felagsmalaskoli.is/index.php/namskeidh?task=detail&id=357
|
Dagur |
mánudagur |
þriðjudagur |
fimmtudagur |
|
09:00 - 15:45 |
Þjóðfélagið og vinnumarkaðurinn Leiðbeinandi: Sigurður Magnússon |
Trúnaðarmaðurinn - starf hans og staða Leiðb.: Sigurlaug Gröndal |
09:00-15:30 Samskipti á vinnustað Leiðb.: Sigurlaug Gröndal |
|
15:30 - 15:45 |
|
Námsmat og slit |
Skráning: http://www.felagsmalaskoli.is/index.php/namskeidh?task=detail&id=462
Stiklur um efnið
BSRB TR I 2. ÞREP
|
Dagur |
mánudagur |
þriðjudagur |
|
09:00 - 15:45 |
Lestur launaseðla og launaútreikningar Leiðbeinandi: Guðmundur Hilmarsson |
09:00 - 15:30 Starfsemi félagsins, kjarasamningar og sjóðir |
|
15:30 - 15:45 |
|
Samantekt og mat á námi - slit |
Skráning: http://www.felagsmalaskoli.is/index.php/namskeidh?task=detail&id=513
Stiklur um efnið