1. desember 2013

Sameiginlegar samninganefndir SFR, FFR og LSS

Sameiginlegurfundurlogud

Sameiginlegar samninganefndir SFR stéttarfélags, Félags flugmálastarfsmanna (FFR) og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), funduðu í dag í fyrsta sinn með fulltrúum Isavía hjá ríkissáttasemjara.

Í nefndinni eru fulltrúar stórra hluta starfsmanna Isavía, t.d. öryggisverðir, slökkviliðsmenn, flugvallastarfsmenn og skrifstofufólk. Sameiginleg kröfugerð félaganna fyrir þennan hóp var lögð fram á fundinum og hún rædd. Næsti samningafundur er áætlaður í næstu viku.