1. desember 2013

Jólaball SFR og St.Rv. - miðasala hafin

jolaball121Jólaball SFR stéttarfélags og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar verður haldið miðvikudaginn 18. desember kl. 17:00 Gullhömrum, Þjóðhildarstíg 2, Reykjavík.

Boðið verður upp á glæsilegar veitingar, dansað í kringum jólatréð og auðvitað koma jólasveinar í heimsókn með glaðning handa börnunum. Miðar verða seldir á skrifstofu félaganna, Grettisgötu 89 frá 2. - 18. desember, opið frá kl. 09:00-16:00.

Miðaverð 700 kr.