- október 2013
Búið að opna fyrir skráningu á fræðslu trúnaðarmanna
Búið að opna fyrir skráningu á fræðslu trúnaðarmanna
Grunnnám trúnaðarmanna sem SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hafa haldið sameiginlega til margra ára hefur verið endurskoðað og er búið að setja upp þrjú námskeið veturinn 2013-2014.
Áfram er um að ræða þriggja daga námskeið þar sem megináherslan er á starf og stefnu stéttarfélagsins, hlutverk trúnaðarmanna og verkfærin hugarkort og lausnarleitarhringinn, kjarasamninga félaganna og túlkun helstu atriða, tjáskipti, mótun sjálfsmyndar og áhrif hennar á hegðun. Á námskeiðinu er lögð áhersla á þjálfun í að vinna með verkfæri og kjarasamning.
Boðið er upp á mismunandi uppsetningu til að sem flestir sjái sér fært að sækja námskeiðið, fyrsta námskeiðið skiptist í 1+2 daga, annað er kennt 3 daga samfellt og þriðja er fyrir hádegi 2 daga vikunnar og nær því yfir þrjar vikur:
Þá er einnig boðið upp á fræðslumorgunn á undan fundi trúnaðarmanna þann 26. nóv. kl. 10-12:15 en þar verða tekin fyrir spurningar og svör sem tengjast kjarasamningi - Skráning og nánari upplýsingar hér.