1. maí 2013

Ástand og horfur efnahagsmála á kjararáðstefnu trúnaðarmanna SFR

Nú stendur yfir kjararáðstefna trúnaðarmanna SFR á hótel Sögu. Dr. Ásgeir Jónsson hagfræðingur og lektor hjá HÍ ræðir m.a. um ástand og horfur í efnahagsmálum. Myndin sem hann dregur upp er sannarlega ekki jákvæð og skapaði erindi hans miklar umræður og spurningar úr sal. Síðar í dag verður hópavinna þar sem trúnaðarmenn taka skref í undirbúningi kjarasamningsgerð og að lokum verður kosið í samninganefndir.

 

kjararadstefna2

Dr. Ásgeir Jónsson lektor við HÍ

kjararadstefna4