Image for Article

  1. janúar 2026

100 ár í þágu borgarstarfsmanna – fögnum sögu StRv

Laugardaginn 17. janúar næstkomandi eru liðin 100 ár frá stofnun Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, annað af stofnfélögum Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu sem stofnað var snemma árs 2019. Af því tilefni ætlar Sameyki að halda upp á tímamótin með opnu húsi í Tjarnarsal í Ráðhúsi Reykjavíkur milli kl. 15:00 og 17:00, þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og notalega samveru.

Guðrún Gunnarsdóttir sér um veislustjórn, Stefán Pálsson sagnfræðingur fer yfir sögu StRv. Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, ásamt fyrrverandi formönnum segja frá starfi og baráttu félagsins í gegnum tíðina.

Katrín Halldóra Sigurðardóttir flytur söngatriði og Sunna Gunnlaugs, djazzpíanisti, annast undirleik. Þá verður myndasýning í salnum sem varpar ljósi á sögu Starfsmannafélags Reykjavíkur í gegnum tíðina.

Við viljum bjóða þér sérstaklega að taka þátt með okkur á þessum tímamótum og fagna 100 ára sögu samstöðu, baráttu og árangurs í þágu starfsfólks Reykjavíkurborgar.