Fræðsla og starfsþróun

Fræðsla styrkir stöðu þína í starfi og opnar ný tækifæri

Hér finnur þú upplýsingar um fræðslu, réttindi og stuðning sem Sameyki býður félagsfólki, hvort sem þú vilt efla hæfni þína, læra nýtt eða undirbúa næstu skref.

Námskeið

Finndu og fræðslu og námskeið sem nýtast þér

Fræðsla er lykill að starfsþróun og öryggi í starfi.
 Hjá Sameyki finnur þú fjölbreytt fræðslutækifæri sem styðja við dagleg störf, faglega þróun og undirbúning fyrir breytingar á vinnumarkaði.
Fræðslan er í boði í samstarfi við Fræðslusetrið Starfsmennt og Framvegis miðstöð símenntunar og hentar félagsfólki með ólíkan bakgrunn, reynslu og þarfir. Einnig er Sameyki í samstarfi við Farskóla Norðurlands vestra og Símey.

Fáðu ráðgjöf um nám og starfsþróun

Ef þú ert óviss um hvaða fræðsla hentar þér best geturðu fengið náms- og starfsráðgjöf. Í ráðgjöfinni færðu stuðning við að:
— Greina þarfir og markmið
— Velja fræðslu sem nýtist í starfi
— Skipuleggja næstu skref í starfsþróun

Bókaðu náms- og starfsráðgjöf

Hvers konar fræðsla er í boði?

Þú getur valið fræðslu sem:
– Styrkir hæfni og fagmennsku í starfi
– Styður við starfsþróun og framgang
– Eykur öryggi og sjálfstraust í breyttu vinnuumhverfi

Hvernig sæki ég fræðsluna?

Fræðslan er í boði sem:
— Staðnám
— Fjarnám
— Vefnám, sem þú vinnur á þínum tíma

Námsleyfi

Námsleyfi getur gert þér kleift að sækja nám eða fræðslu samhliða starfi. Í kjarasamningum Sameykis eru ákvæði um námsleyfi sem veita félagsfólki svigrúm til að læra og þróast, ýmist með launuðu eða ólaunuðu leyfi, eftir aðstæðum.
Fræðslumál
Sameyki leggur áherslu á fjölbreytta fræðslu og starfsþróun fyrir félagsmenn og kjörna fulltrúa. Í samstarfi við aðila eins og Starfsmennt, Framvegis, Félagsmálaskóla alþýðu og Starfsgreinaráð er unnið að fjölbreyttu fræðsluframboði fyrir alla.

Fræðslusetrið Starfsmennt      er í eigu Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og fleiri stéttarfélaga innan BSRB.

Starfsmennt býður opinberum starfsmönnum upp á starfstengda símenntun og veitir stofnunum heildstæða þjónustu á sviði starfsþróunar og mannauðseflingar.

Framvegis miðstöð símenntunar      er í eigu Sameykis stéttarfélags og Sjúkraliðafélags Íslands og hefur það að markmiði að bjóða metnaðarfullt nám og námskeið fyrir fullorðna sem svara þörfum atvinnulífsins.

Félagsmálaskóli alþýðu     er starfræktur af BSRB og Alþýðusambandi Íslands. 
Félagsmálaskólinn býður upp á námskeið fyrir trúnaðarmenn, stjórnarmenn og starfsfólk stéttarfélaga. Hlutverk hans er að auka þekkingu talsmanna stéttarfélaga og efla þá í starfi til þess að þeir séu betur í stakk búnir að vinna að bættum lífskjörum launafólks. 
Skólanefnd Félagsmálaskóla alþýðu ber ábyrgð á rekstri skólans ásamt skólastjóra.

Sameyki tekur þátt í starfi Starfsgreinaráðs heilbrigðis, félags- og uppeldisgreina fyrir hönd BSRB.

Starfsgreinaráð er ráðherra til ráðgjafar um starfsnám á framhaldsskólastigi. Hlutverk þeirra er m.a. að gera tillögur um almenn markmið náms, skilgreina þarfir fyrir kunnáttu og hæfni og gera tillögur um lokamarkmið náms.

Icelandic for foreigners

Baratala – íslenska sem nýtist í vinnu

Sameyki býður félagsfólki af erlendum uppruna aðgang að Baratala, stafrænu íslenskunámi sem leggur áherslu á.

Fræðsla trúnaðarmanna

Hlutverk trúnaðarmanna er margþætt og er fjölbreytt
fræðsla grunnur að því að trúnaðarmaður geti tekist á
við hlutverk sitt.