Stjórn og skipulag
Kári Sigurðsson
Formaður
kari@sameyki.is
Ingibjörg Sif Sigríðardóttir
Varaformaður
ingibjorg@sameyki.is
Svanhildur Steinarsdóttir
Ritari
hilda166168@gmail.com
Bryngeir A. Bryngeirsson
Meðstjórnandi
bynniab@gmail.com
Jón Brynjarsson
Meðstjórnandi
jonbrynjarsson@gmail.com
Ingunn Hafdís Þorláksdóttir
Meðstjórnandi
ingunnhafdis@gmail.com
Egill Kristján Björnsson
Meðstjórnandi
egillkristjan@gmail.com
Ólafía L. Sævarsdóttir
Meðstjórnandi
loasae@gmail.com
Ása Guðmundsdóttir
Meðstjórnandi
asa@unak.is
Suzana Vranjes
Meðstjórnandi
suzana@sameyki.is
Herdís Jóhannsdóttir
Meðstjórnandi
herdis@reykjavik.is
Rut Ragnarsdóttir
Meðstjórnandi
rut.ragnarsdottir@reykjavik.is
Samninganefndir Sameykis
Stjórn félagsins gerir tillögur um samninganefndir vegna hvers kjarasamnings og leggur fyrir trúnaðarmenn á hverju kjarasamningssviði til samþykktar eða synjunar. Fjöldi félaga í samninganefnd skal fara eftir stærð en þó aldrei vera fleiri en tólf einstaklingar. Formaður félagsins skal vera formaður samninganefnda nema hann skipi annan í sinn stað. Við kjör samninganefndar skal þess gætt að í nefndina séu kjörnir fulltrúar ólíkra starfsgreina innan hvers kjarasviðs.
Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag
Test 2
Ingibjörg Sif Sigríðardóttir
Faxaflóahafnir
Faxaflóahafnir
Félagsbústaðir
Félagsbústaðir
Isavia
Isavia
Klettabær
Klettabær
Orkuveitan
Orkuveitan
Rarik
Rarik
Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg
Ríkið
Ríkið
Samband íslenskra sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu
Strætó bs.
Strætó bs.
Vinakot
Vinakot
Aðalfundur Sameykis
Aðalfundur er æðsta vald félagsins. Hann skal haldinn fyrir lok mars ár hvert samkvæmt lögum Sameykis.
Fundurinn er auglýstur með að minnsta kosti 35 daga fyrirvara. Þegar stjórnarkjör fer fram skal jafnframt auglýst eftir tillögum um stjórnarmenn, sbr. 9. og 10. gr. laga félagsins.
Takist ekki að ljúka aðalfundarstörfum á einum fundi skal boða til framhaldsaðalfundar.
Sérstök verkefni aðalfunda eru tekin fyrir á fundinum. Á því ári sem ekki fer fram stjórnarkjör falla þó atriði 4, 6 og 8 út af dagskrá.
Dagskrá aðalfundar
Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári.
Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið almanaksár.
Tekin ákvörðun um tillögur til lagabreytinga.
Kosinn löggiltur endurskoðandi félagsreikninga, tveir skoðunarmenn og tveir til vara.
Ákveðið árgjald félagsmanna og skipting þess milli sjóða.
Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram til samþykktar.
Ályktanir aðalfundar afgreiddar.
Önnur mál.
Ársskýrslur Sameykis
Lög Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu
1. kafli. Nafn og tilgangur
1. gr. - Félagið heitir Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Félagssvæði þess er landið allt. Félagið skiptist í tvo hluta; opinberan hluta og almennan hluta. Í O-hlutanum eru einstaklingar sem aðild eiga á grundvelli 1. til 2. töluliðs 3. gr. laga þessara. Í A-hlutanum eru einstaklingar sem aðildarrétt eiga á grundvelli 3. og 4. töluliðs 3. gr. þessara laga. Lög nr. 94/1986 gilda um starfsemi O-hluta félagsins við gerð kjarasamninga en lög nr. 80/1938 gilda um kjarasamningsgerð A-hluta.
2. gr. - Tilgangur félagsins er:
1. Að vinna að hagsmunamálum félagsfólks, standa vörð um réttindi þeirra og beita sér gegn hvers konar misrétti í launagreiðslum og starfskjörum.
2. Félagið styður félagsfólk og veitir ráðgjöf vegna ráðningarkjara, starfskjara, eftirlauna, brottvikningar, félagslegrar mismununar og annars sem máli skiptir í samræmi við tilgang félagsins.
3. Að fara með fyrirsvar einstaklinga, sem aðild eiga að félaginu, við gerð kjarasamninga.