fréttir og greinar
11.2.2026 11:00:05
Gervigreindarlæsi
11.2.2026 10:55:03
Horft fram á veginn
11.2.2026 09:36:59
Brúnaðar kartöflur
10.2.2026 11:58:39
BSRB gagnrýnir harðlega frumvarp ríkisstjórnarinnar um sjúkratryggingar
Hér eru helstu upplýsingar sem fjölmiðlar þurfa frá Sameyki: um félagið, merki, myndir og tengiliðir.
Flýtileiðir
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu var stofnað 26. janúar 2019 við sameiningu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu.
Félagið telur rúmlega 16.000 félaga. Um 65% eru konur og 35% karlar. Félagar starfa víða í almannaþjónustu. Stærstu vinnustaðirnir eru m.a. Landspítali, Strætó, fangelsin, Isavia, Orkuveitan, Skatturinn, leik- og grunnskólar, frístundaheimili, söfn, sambýli fatlaðra og sjálfseignarstofnanir í velferðarþjónustu.
Félagssvæði Sameykis er allt landið.
Kári Sigurðsson
formaður
Gunnsteinn R. Ómarsson
framkvæmdastjóri
Axel Jón Ellenarson
samskiptastjóri
Fjölmiðlum er heimilt að nota ljósmyndirnar af Kára Sigurðssyni, formanni Sameykis, með fréttum sem tengjast myndefninu. Vinsamlegast athugið að önnur not á myndunum eru ekki heimil án leyfis frá Sameyki. Höfundur ljósmyndanna er Birgir Ísleifur Gunnarsson/BIG.
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis (1) (JPG)
4,25 MB
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis (2) (JPG)
3,25 MB
Heitið Sameyki er sjaldgæft en hljómfagurt íslenskt orð sem er gamalt í málinu. Orðið sameyki merkir teymi (e. team) og var sérstaklega notað sem slíkt áður en orðið teymi varð til í íslensku. Orðið sameyki stendur þannig fyrir samvinnu en er einnig notað yfir það þegar dýr eða vélar eru tengd saman til að draga þungt hlass. Merkingin vísar í styrk, samstarf og samstöðu og er lýsandi fyrir sameinað félag.
Sameyki var ein af 291 hugmynd sem send voru inn í samkeppni um nafn og höfundur þessa merkingarþrungna heitis er Margrét Högnadóttir sem er trúnaðarmaður hjá Ríkisskattstjóra.
fréttir og greinar
11.2.2026 11:00:05
Gervigreindarlæsi
11.2.2026 10:55:03
Horft fram á veginn
11.2.2026 09:36:59
Brúnaðar kartöflur
10.2.2026 11:58:39
BSRB gagnrýnir harðlega frumvarp ríkisstjórnarinnar um sjúkratryggingar
fréttir og greinar
11. February 2026