Bókanir í kjarasamningum við Reykjavíkurborg

Bókun 13

Aðaltrúnaðarmaður Sameykis – stéttarfélags

Vegna fjölbreytileika starfa og fjölda félagsmanna Sameykis hjá Reykjavíkurborg er Sameyki heimilt að velja einn aðaltrúnaðarmann úr hópi starfsmanna til að fylgjast með málum þeirra hjá borginni. Um tímabundna ákvörðun er að ræða sem gildir á samningstímanum frá 1. apríl 2024 – 31. mars 2028. Sjá nánar í samkomulagi aðila.