Bókanir í kjarasamningum við Reykjavíkurborg

Aðilar eru sammála um að fara í skoðun og markvissa greiningu á nýtingu iðgjalda til fræðslumála og fyrirkomulagi fræðslusjóða. Skal sú vinna fara fram undir verkstjórn embættis ríkissáttasemjara og vera lokið fyrir 31. desember 2024.

Reykjavíkurborg hefur komið að samstarfi við Fræðslusetrið Starfsmennt frá 1. janúar 2022 á grundvelli bókunar 5 við kjarasamning aðila frá 2019. Aðilar eru sammála um að greiðslur á iðgjaldi sem nemur 0,25% af heildarlaunum sem hefur verið greitt til Starfsmenntar verði frá 1. apríl 2024 greitt inn á sérstakan vörslureikning Starfsmenntar þar til að samkomulag næst um ráðstöfun fjárins. Þeir fjármunir sem greiddir verða þar inn skulu renna til Torgs-sjóðs þegar samningsaðilar ná saman um framtíðar fyrirkomulag. Jafnframt verði skoðað í þeirri vinnu sem farið verður í, að greitt verði sérstakt stofnframlag í ofangreindan Torgs sjóð ef til kemur að sjóðurinn verði að veruleika.