Bókanir í kjarasamningum við Reykjavíkurborg

Bókun 5

Viðmið um vinnuskil í vaktavinnu

Fulltrúar Reykjavíkurborgar og BSRB munu leggja áherslu á við stýrihóp að hann komi sér saman um viðmið, fyrir lok september 2024, vegna umfram vinnuskila í vaktavinnu. Meginreglan er sú að vinnuskil umfram vinnuskyldu eru greidd sem yfirvinna. Þó verður að gera ráð fyrir að þegar um vaktavinnu er að ræða sé eðlilegt að vinnuskil sveiflist að einhverju leyti á milli mánaða. Horft skal til þess við ákvörðun viðmiðs að setja meginreglu annars vegar og hins vegar undantekningu þegar skipulag í starfsemi kallar á lengri vaktir.