Bókanir í kjarasamningum við Reykjavíkurborg

Aðilar eru sammála um að tilefni sé til að bæta og tryggja bótarétt þeirra starfsmanna sem slasast við að sinna eða hafa afskipti af fólki sem að takmörkuðu eða engu leyti getur borið ábyrgð á gerðum sínum. Hluti af starfsskyldum starfsmanna getur falist í því að grípa inn í og stöðva hættulegt atferli hjá einstaklingum sem að takmörkuðu eða engu leyti geta borið ábyrgð á gerðum sínum. Komið geta upp aðstæður þar sem slíkt verður ekki gert án þess að viðkomandi starfsmaður setji sjálfan sig í ákveðna hættu á að slasast við framkvæmd starfs síns. Rétt þykir að tryggja þessum starfsmönnum bótarétt vegna þess tjóns sem þeir þannig verða fyrir í starfi. Aðilar eru sammála um að hefðbundin skilgreining á því hvað sé slys í skilningi 50 vátryggingaréttar og tryggingaskilmála (óvæntur utanaðkomandi atburður) eigi ekki við í öllum tilfellum í störfum ofangreindra starfsmanna. Því er í ákvæði greinar 8.5.1 kveðið á um að starfsmaður skal beina skaðabótakröfu sinni vegna líkams- eða munatjóns við þessar aðstæður að launagreiðanda. Um lækkun bóta vegna eigin sakar starfsmanns og ákvörðun bótafjárhæðar að öðru leyti gilda almennar reglur skaðabótaréttarins