Bókanir í kjarasamningum við Reykjavíkurborg

Bókun 6

Erfiðleikastig í þjónustu við fatlað fólk

Samkvæmt faglegu mati velferðarsviðs hafa starfsstaðir með mikilli þjónustuþörf verið skilgreindir með aukið erfiðleikastig. Starfsmenn heimila með erfiðleikastig II fá 2ja launaflokka hækkun og starfsmenn heimila með erfiðleikastig III fá 4ra launaflokka hækkun. Aðilar eru sammála um að skipa starfshóp til að endurskoða skilgreiningar á erfiðleikastigum og að mat liggi fyrir 30. september 2025.