Námsleyfi
Athugaðu rétt þinn til námsleyfis
Námsleyfi getur gert þér kleift að sækja nám eða fræðslu samhliða starfi. Í kjarasamningum Sameykis eru ákvæði um námsleyfi sem veita félagsfólki svigrúm til að læra og þróast, ýmist með launuðu eða ólaunuðu leyfi, eftir aðstæðum.
Námsleyfi
Námsleyfi er leyfi frá vinnu til að sækja nám, námskeið eða fræðslu sem tengist starfi eða starfsþróun.
Réttur til námsleyfis fer eftir kjarasamningi, starfsaldri og þarf að taka eftir samkomulagi við vinnustað.
Launað eða ólaunað námsleyfi
Í sumum kjarasamningum er heimilt að veita launað námsleyfi. Til dæmis vegna starfsþróunar eða við ákveðin skilyrði.
Ólaunað námsleyfi getur komið til greina þegar nám eða fræðsla nýtist til lengri tíma og er í samráði við vinnustað.
Mikilvægt er að kynna sér ákvæði kjarasamnings og ræða fyrirkomulag við stjórnendur.
Undirbúningur
- Skoðaðu hvaða fræðsla eða nám hentar þér
- Kannaðu réttindi samkvæmt kjarasamningi
- Ræddu við vinnustaðinn með góðum fyrirvara
- Athugaðu hvort að fræðslustyrkir geti stutt við námið