Íslenskunám

Góð íslenskukunnátta styrkir stöðu þína í starfi og eykur öryggi í samskiptum.

Icelandic for foreigners

Lærðu íslensku sem nýtist þér í starfi

Sameyki vill styðja félagsfólk af erlendum uppruna í að læra íslensku sem nýtist í daglegum störfum og í samfélaginu. Hér finnur þú upplýsingar um íslenskunám, styrki og aðgang að lausnum sem gera námið sveigjanlegt og aðgengilegt.

Íslenska getur…

  • auðveldað samskipti á vinnustað
  • aukið öryggi og sjálfstæði í starfi
  • styrkt aðild að vinnustaðamenningu
  • opnað fleiri tækifæri til starfsþróunar

Sameyki lítur á tungumálakunnáttu sem lykilþátt í inngildingu og jöfnum tækifærum.

Icelandic for foreigners

Baratala – íslenska sem nýtist í vinnu

Sameyki býður félagsfólki af erlendum uppruna aðgang að Baratala, stafrænu íslenskunámi sem leggur áherslu á talmál, starfstengdan orðaforða og raunverulegar aðstæður úr daglegu lífi og starfi.

Námið er sveigjanlegt, auðvelt að vinna samhliða vinnu og aðgengilegt í síma eða tölvu.

Hverjir geta nýtt sér íslenskunám?

Aðgangur getur verið í gegnum vinnustað eða Sameyki, eftir aðstæðum.

Félagar af erlendum uppruna

Félagsfólk Sameykis af erlendum uppruna sem vill styrkja íslenskukunnáttu sína getur fengið styrk til íslenskunáms úr starfsmenntunarsjóði strax og það verður virkt í félaginu.

Það þýðir að ekki þarf að hafa verið í félaginu í 6 mánuði, eins og almennt gildir um aðra styrki. Rétturinn myndast þegar félagsgjald hefur skilað sér til Sameykis, yfirleitt eftir fyrsta mánuð í starfi.

Styrkir og sjóðir

Styrkir til vinnustaða

Sameyki veitir einnig styrki til vinnustaða sem vilja bjóða starfsfólki upp á íslenskunám. Slíkir styrkir eru veittir í gegnum sjóði Sameykis sem samið er um í kjarasamningum. Þetta getur nýst þegar:

  • þegar vinnustaðir skipuleggja íslenskunám á vinnutíma
  • til að styðja inngildingu og jafnan aðgang að fræðslu
  • til að efla samskipti og starfsumhverfi á vinnustað
Styrkir til vinnustaða